Jón Sigurðsson: Andþóf

Jón Sigurðsson: Andþóf

by Páll Eggert Ólason
Jón Sigurðsson: Andþóf

Jón Sigurðsson: Andþóf

by Páll Eggert Ólason

eBook

$10.99 

Available on Compatible NOOK Devices and the free NOOK Apps.
WANT A NOOK?  Explore Now

Related collections and offers


Overview

Þriðji hluti ævisögu Jóns Sigurðssonar greinir frá Alþingisfundunum árin 1853 og 1857, þeim ýmsu þingmálum sem þar voru tekin fyrir ásamt baráttu Íslendinga fyrir verslunarfrelsi. Þrátt fyrir vonbrigði að þjóðfundi loknum, efldu niðurstöður hans samstöðu og viðhorf þjóðarinnar til sjálfstæðisbaráttu. Þá litu landsmenn helst til Jóns Sigurðssonar hvað þjóðmál snertir enda atorkusamur í að koma skoðunum sínum á framfæri, bæði í ræðu og riti. Var það helst tímaritið Ný félagsrit sem birti skoðanir baráttumanna um höfuðmál þjóðarinnar á fræðandi, leiðbeinandi og hvetjandi máta. Á þessum tíma tók Jón einnig við stöðu forseta Hins Íslenzka bókmenntafélags ásamt því að starfa fyrir Árnasafn þar sem hann lagði ríka áherslu á söfnun íslenskra handrita. Jón Sigurðsson I-V er ævisaga þjóðarhetju og leiðtoga Íslands í sjálfstæðisbaráttunni á 19. öld. Ævisagan var upprunalega gefin út í fimm bindum af Hinu Íslenzka Þjóðvinafélagi í Reykjavík á árunum 1929-1933. Verkið er viðamikið og gefur innsýn í afdrifaríka ævi Jóns Sigurðssonar og sjálfstæðisbaráttuna við Dani. Höfundur bókanna er Páll Eggert Ólason. Páll Eggert Ólason (1883-1949) var íslenskur doktor og prófessor í sagnfræði. Eftir stúdentsprófið lauk hann embættisprófi í lögfræði við Háskóla Íslands og hlaut síðar doktorsnafnbót fyrir rit sitt um Jón Arason. Páll sinnti fjölbreyttum störfum í gegnum tíðina en þar má helst nefna stöðu bankastjóra Búnaðarbankans, skrifstofustjóra fjármálaráðuneytisins og bæjarfulltrúa í Reykjavíkurborg. Þekktastur er Páll þó fyrir fræða- og ritstörf sín sem skipuðu stóran sess á starfsferli hans. Hann var afkastamikill rithöfundur enda fróður um sögu Íslands og afar leikinn við heimildavinnu. Ritverk hans eru bæði yfirgripsmikil og efnisrík en meðal þeirra eru samantekt á Íslenzkum æviskrám, Ævisaga Jóns Sigurðssonar I-V og Menn og menntir siðaskiptaaldarinnar á Íslandi I-IV.

Product Details

ISBN-13: 9788728281840
Publisher: Saga Egmont International
Publication date: 04/05/2023
Series: Jón Sigurðsson , #3
Sold by: De Marque
Format: eBook
Pages: 427
File size: 575 KB
Language: Icelandic
From the B&N Reads Blog

Customer Reviews